Hvernig röðum við sálfræðingum í Souldis?

Útgáfa 0 ·

Hér segjum við hvernig listinn yfir sálfræðinga í Souldis-appinu verður til og í hvaða röð hann birtist. Við viljum að skjólstæðingar og sálfræðingar geti séð og skilið hvernig við vinnum.

Hver birtist á listanum

Sálfræðingur birtist á listanum þegar allt þetta á við:

  • Souldis hefur farið yfir starfsleyfi hans.
  • Hann hefur sett verð á tíma.
  • Hann á lausan tíma á næstu 90 dögum.
  • Hann tekur við nýjum skjólstæðingum.
  • Hann og stofan hans eru skráð sem sýnileg í Souldis.
  • Kortagreiðslur í gegnum Souldis eru virkar fyrir hann hjá stofunni hans.

Leit og síur

Þú getur leitað að nafni og síað eftir sérsviði og áherslum. Ef þú velur fleiri en eitt atriði birtast þeir sem uppfylla þau öll.

Í hvaða röð listinn birtist

Sá sem á fyrsta lausa tímann birtist efst, svo sá sem á næsta lausa tíma, og svo framvegis. Aðeins tímar sem eru ekki liðnir teljast með, og aðeins þeir sjást á spjaldinu. Ef fleiri en einn eiga fyrsta lausa tímann sinn á sömu mínútu, raðast þeir eftir föstu innra númeri sem enginn velur. Ekkert annað ræður röðinni.

Það sem ræður aldrei röðinni

  • Verð. Dýrari eða ódýrari tímar raðast ekki ofar.
  • Það sem Souldis fær greitt. Það sem stofa greiðir Souldis hefur engin áhrif á röðina.
  • Vinsældir. Hvorki fjöldi bókana né smellir.
  • Umsagnir. Í Souldis eru engar stjörnur og engar umsagnir um sálfræðinga.
  • Enginn getur greitt fyrir betra sæti og enginn hjá Souldis getur fært neinn ofar eða neðar.

Hver veitir þjónustuna

Sálfræðingarnir starfa á sjálfstæðum stofum. Stofan selur tímann, tekur við greiðslunni og ber ásamt sálfræðingnum faglega ábyrgð á þjónustunni. Sáltækni ehf. (kt. 520123-0830) á og rekur Souldis og leggur til hugbúnaðinn.

Sanngirni

Sáldís, fyrsta stofan í Souldis, tengist stjórnendum Sáltækni. Hún er okkur mikilvæg við að þróa hugbúnaðinn áfram. Í röðuninni stendur hún jafnfætis öllum öðrum stofum: hún fer eftir sömu reglum og lýst er hér að ofan, röðunin veit ekki hver á hvaða stofu og enginn getur fært neinn ofar eða neðar.

Breytingar og athugasemdir

Við erum að þróa röðunina áfram, meðal annars svo sálfræðingar sem eru jafnir birtist til skiptis efst. Nýjar reglur um röðun birtum við hér minnst 30 dögum áður en þær taka gildi, með dagsetningu, og á þeim tíma er öllum velkomið að gera athugasemdir. Lagfæringar á villum og breytingar sem lög eða öryggi krefjast geta tekið gildi strax, og þá skráum við þær hér með dagsetningu og skýringu. Sálfræðingar sem telja eitthvað ósanngjarnt eru sérstaklega hvattir til að láta okkur vita.

Væntanleg breyting (birt 2. nóvember 2026): í appinu verður líka hægt að sjá listann eftir stofum. Þá birtist hver stofa einu sinni, á þeim stað sem efsti sálfræðingur hennar fengi, svo stofa með fleiri sálfræðinga er líklegri til að birtast ofarlega. Stofa birtist þegar einhver sálfræðinga hennar passar við leitina og síurnar. Sálfræðingur sem starfar einn á eigin stofu birtist sem stofa í sýninni eftir stofum. Listinn sýnir áfram alla sálfræðinga í fyrsta sinn sem hann er opnaður. Eftir það opnast hann í þeirri sýn sem notandinn valdi síðast. Röð sálfræðinganna sjálfra breytist ekki. Þetta tekur gildi í fyrsta lagi 2. desember 2026.

Athugasemdir og spurningar: support@souldis.com