Eyða aðgangi
Þú getur eytt Souldis-aðganginum þínum í appinu eða beðið okkur um það í tölvupósti. Souldis er app frá Sáltækni ehf., kt. 520123-0830. Hér kemur fram hvað gerist við eyðingu og hvað er geymt. Þú getur líka eytt hluta gagnanna en haldið aðganginum.
Í appinu
Appið er á ensku, svo hnapparnir heita það sem stendur hér.
- Opnaðu Souldis-appið og skráðu þig inn.
- Ýttu á Profile neðst á skjánum.
- Ýttu á Delete account neðst í listanum, undir Log out.
- Lestu hvað gerist við eyðingu, ýttu svo á Delete account og staðfestu.
Í tölvupósti
Ef þú kemst ekki í appið skaltu senda okkur póst frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á og biðja okkur að eyða honum.
Hvað gerist við eyðingu
- Innskráningu lýkur á öllum tækjum og ekki er lengur hægt að skrá sig inn.
- Nafn, netfang, símanúmer og mynd eru fjarlægð af aðganginum.
- Tenging við Google eða Apple er fjarlægð.
- Souldis hættir að senda þér tilkynningar og tölvupóst.
Hvað er geymt
- Sjúkraskráin þín er áfram hjá stofunni þinni. Lög um sjúkraskrár nr. 55/2009 skylda stofuna til að geyma hana, svo henni er ekki eytt. Upplýsingum um þig sem skjólstæðing, skilaboðum, tímum, spurningalistum og verkefnum í appinu er ekki heldur eytt. Ef þú vilt afrit skaltu biðja stofuna um það.
- Kvittanir fyrir tíma sem þú greiddir, sem bera nafnið þitt, eru geymdar eins lengi og bókhaldslög krefjast.
- Ef þú staðfestir hver þú ert með rafrænum skilríkjum fylgir sú staðfesting lokaða aðganginum.
Ekki hægt að afturkalla
Þegar aðganginum hefur verið eytt er ekki hægt að endurheimta hann. Ef þú kemur aftur síðar byrjar þú með nýjan aðgang.
Eyða hluta gagnanna en halda aðganginum
Þú getur beðið Souldis að eyða hluta gagnanna þinna án þess að eyða aðganginum. Hvað við getum eytt fer eftir því hvort gögnin tilheyra sjúkraskránni þinni.
- Sendu póst á personuvernd@souldis.com (eða support@souldis.com) frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á.
- Segðu hvaða gögnum þú vilt að við eyðum.
Biddu okkur að eyða hluta gagnanna
personuvernd@souldis.comVið svörum innan eins mánaðar. Ef beiðnin er umfangsmikil megum við lengja frestinn um allt að tvo mánuði til viðbótar og látum þig þá vita.
- Eytt að þinni ósk: upplýsingar utan sjúkraskrár, til dæmis tengiliðaupplýsingar sem þú gafst umfram það sem aðgangurinn þarf, bókaðir tímar sem hafa ekki farið fram, valfrjáls samskipti og efni sem þú skráir að eigin frumkvæði og hefur ekki deilt með meðferðaraðila. Við staðfestum eyðinguna við þig.
- Ekki eytt að þinni ósk: allt sem tilheyrir sjúkraskránni, þar á meðal spjallskilaboð við meðferðaraðilann, svör sem þú sendir við spurningalistum og verkefnum, líðanarskráning sem þú hefur deilt og skráning viðtala sem haldin hafa verið. Lög um sjúkraskrár nr. 55/2009 ganga framar almennum rétti til eyðingar. Eyðing upplýsinga úr sjúkraskrá er aðeins heimil með samþykki embættis landlæknis. Við leiðbeinum þér um þá leið ef þú óskar þess.
Þegar þú hefur deilt efni með meðferðaraðilanum verður það hluti af sjúkraskránni og það er ekki afturkræft.