Aðstoð
Souldis er app fyrir sálfræðinga og skjólstæðinga þeirra á Íslandi. Í appinu bókar þú tíma, tekur viðtalið í myndsímtali, ert í sambandi við meðferðaraðilann þinn milli viðtala og vinnur þau verkefni sem hann setur þér. Appið er rekið af Sáltækni ehf., kt. 520123-0830.
Souldis er hugbúnaður. Stofan þín og sálfræðingar hennar veita heilbrigðisþjónustuna og bera faglega ábyrgð á henni. Sáltækni ehf. leggur til tæknilega vettvanginn.
Hjálp strax
Souldis er ekki neyðarþjónusta. Tímar hjá Souldis geta verið eftir nokkra daga; hér svarar fólk núna.
Neyðarlínan 112
Ef líf er í hættu, hringdu í 112.
Píeta
Fyrir fólk með sjálfsvígshugsanir eða í sjálfsskaða, og aðstandendur. Ókeypis, allan sólarhringinn.
1717
Hjálparsími Rauða krossins, um hvað sem er. Ókeypis, nafnlaust, allan sólarhringinn.
Stofnaðir þú aðganginn með Apple? Innskráning með Apple er ekki enn í boði á Android. Haltu áfram með Google ef Google-aðgangurinn þinn er með sama netfang, eða skrifaðu á support@souldis.com.