Delete your account
You can delete your Souldis account in the app, or ask us to do it by e-mail. Souldis is an app by Sáltækni ehf., company registration number 520123-0830. This page says what deleting does & what is kept. You can also delete some of your data and keep your account.
In the app
- Open the Souldis app & log in.
- Tap Profile at the bottom of the screen.
- At the bottom of the menu, under Log out, tap Delete account.
- Read what deleting does, then tap Delete account & confirm.
By e-mail
If you can't use the app, e-mail us from the e-mail address on your account & ask us to delete it.
What deleting does
- You are logged out on every device & can no longer log in.
- Your name, e-mail address, phone number & photo are removed from your account.
- Your Google or Apple sign-in link is removed.
- Souldis stops sending you notices & e-mails.
What is kept
- Your health record stays with your clinic. The Icelandic Health Records Act (lög 55/2009) requires the clinic to keep it, so it is not deleted. Your patient details, messages, appointments, questionnaires & assignments in the app are not deleted either. If you want a copy, ask your clinic.
- Receipts for sessions you paid for, which show your name, are kept for as long as accounting law requires.
- If you confirmed your identity with rafræn skilríki, that confirmation stays with the closed account.
This cannot be undone
Once your account is deleted, it cannot be brought back. If you come back later, you will start with a new account.
Delete some of your data and keep your account
You can ask Souldis to delete some of your data without deleting your account. What we can delete depends on whether the data belongs to your health record.
- E-mail personuvernd@souldis.com (or support@souldis.com) from the e-mail address on your account.
- Say which data you want deleted.
Ask us to delete some of your data
personuvernd@souldis.comWe answer within one month. If the request is large, we may extend that by up to two more months and will tell you.
- Deleted on request: information outside your health record. For example, contact details you gave beyond what the account needs, bookings that have not taken place, optional communications, and content you entered on your own initiative and have not shared with your therapist. We confirm the deletion to you.
- Not deleted on request: anything that belongs to your health record. That includes your messages with your therapist, the questionnaire and assignment answers you sent, mood entries you shared, and records of sessions that took place. The Icelandic Health Records Act (lög 55/2009) comes before the general right to erasure. Deleting health record data needs the consent of the Directorate of Health (embætti landlæknis). We explain that route if you ask.
Once you share something with your therapist, it becomes part of your health record. That cannot be undone.
Eyða aðgangi
Þú getur eytt Souldis-aðganginum þínum í appinu eða beðið okkur um það í tölvupósti. Souldis er app frá Sáltækni ehf., kt. 520123-0830. Hér stendur hvað eyðingin gerir og hvað er geymt. Þú getur líka eytt hluta gagnanna en haldið aðganginum.
Í appinu
Appið er á ensku, svo hnapparnir heita það sem stendur hér.
- Opnaðu Souldis-appið og skráðu þig inn.
- Ýttu á Profile neðst á skjánum.
- Neðst í listanum, undir Log out, ýttu á Delete account.
- Lestu hvað eyðingin gerir, ýttu svo á Delete account og staðfestu.
Í tölvupósti
Ef þú kemst ekki í appið skaltu senda okkur póst frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á og biðja okkur að eyða honum.
Hvað eyðingin gerir
- Innskráningu lýkur á öllum tækjum og ekki er lengur hægt að skrá sig inn.
- Nafn, netfang, símanúmer og mynd eru fjarlægð af aðganginum.
- Tenging við Google eða Apple er fjarlægð.
- Souldis hættir að senda þér tilkynningar og tölvupóst.
Hvað er geymt
- Sjúkraskráin þín er áfram hjá stofunni þinni. Lög um sjúkraskrár nr. 55/2009 skylda stofuna til að geyma hana, svo henni er ekki eytt. Upplýsingum um þig sem skjólstæðing, skilaboðum, tímum, spurningalistum og verkefnum í appinu er ekki heldur eytt. Ef þú vilt afrit skaltu biðja stofuna um það.
- Kvittanir fyrir tíma sem þú greiddir, sem bera nafnið þitt, eru geymdar eins lengi og bókhaldslög krefjast.
- Ef þú staðfestir hver þú ert með rafrænum skilríkjum fylgir sú staðfesting lokaða aðganginum.
Ekki hægt að afturkalla
Þegar aðganginum hefur verið eytt er ekki hægt að endurheimta hann. Ef þú kemur aftur síðar byrjar þú með nýjan aðgang.
Eyða hluta gagnanna en halda aðganginum
Þú getur beðið Souldis að eyða hluta gagnanna þinna án þess að eyða aðganginum. Hvað við getum eytt fer eftir því hvort gögnin tilheyra sjúkraskránni þinni.
- Sendu póst á personuvernd@souldis.com (eða support@souldis.com) frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á.
- Segðu hvaða gögnum þú vilt að við eyðum.
Biddu okkur að eyða hluta gagnanna
personuvernd@souldis.comVið svörum innan eins mánaðar. Ef beiðnin er umfangsmikil megum við lengja frestinn um allt að tvo mánuði til viðbótar og látum þig þá vita.
- Eytt að þinni ósk: upplýsingar utan sjúkraskrár, til dæmis tengiliðaupplýsingar sem þú gafst umfram það sem aðgangurinn þarf, tímabókanir sem ekki hafa farið fram, valfrjáls samskipti og efni sem þú skráir að eigin frumkvæði og hefur ekki deilt með meðferðaraðila. Við staðfestum eyðinguna við þig.
- Ekki eytt að þinni ósk: allt sem tilheyrir sjúkraskránni, þar á meðal spjallskilaboð við meðferðaraðilann, svör sem þú sendir við spurningalistum og verkefnum, líðanarskráning sem þú hefur deilt og skráning viðtala sem haldin hafa verið. Lög um sjúkraskrár nr. 55/2009 ganga framar almennum rétti til eyðingar. Eyðing upplýsinga úr sjúkraskrá er aðeins heimil með samþykki embættis landlæknis. Við leiðbeinum þér um þá leið ef þú óskar þess.
Þegar þú hefur deilt efni með meðferðaraðilanum verður það hluti af sjúkraskránni og það er ekki afturkræft.